|
HJÁLP
Í
listanum vinstra megin eru þau þemu sem hægt er að sýna, skoða og gera fyrirspurnir
til í kortaglugganum. Listanum er skift í nokkra flokka eftir eiginleikum
þemanna. Sum þemu geta jafnvel kallað á önnur skjöl eins og hringmyndir eða
skönnuð lóðablöð. Flokkar þemanna eru eftirfarandi:
- Lagnir: Þarna eru birtar upplýsingar um lagnir sem borgin ber ábyrgð á auk lagna
Landssímans. Hægt er að teikna lagnir á kortið auk þess að benda á einstaka
lagnir og fá nánari upplýsingar um þær í sérstakan upplýsingaglugga.
-
Upplýsingar: Undir þessum flokki er safnað saman þemum sem veita m.a. upplýsingar úr gagnagrunnum
LUKR. Allar upplýsingar birtast í sérstökum glugga.
Þessi þemu eiga það sameiginlegt að þau birtast yfirleitt ekki á kortinu
að undanskildum hringmyndum. Þegar hringmyndir eru valdar birtast punktar
á kortinu sem sýna staðsetningu staða þar sem teknar hafa verið hringmyndir
(360 gráðu myndir). Núverandi hringmyndir voru teknar árið 2000 af Landmati
ehf fyrir Reykjavíkurborg.
- Framkvæmdir: Í þessum flokki birtast áætlaðar framkvæmdir borgarinnar og veitufyrirtækja
á yfirstandandi ári á hverjum tíma. Hægt er teikna þær á kortið auk þess
að benda á einstaka lagnir og fá nánari upplýsingar um þær í sérstakan upplýsingaglugga.
Þarna er einnig hægt að fá upplýsingar um þær lóðir í borginni sem eru lausar
til úthlutunar.
- Þjónusta: Undir þessum flokki er hægt að fá
upplýsingar um ýmsa þjónustu sem borgin veitir. Þær byggingar sem hýsa viðkomandi
þjónustu fá sérstakan lit og hægt er að fá frekari upplýsingar um þær í
sérstakan upplýsingaglugga.
- Annað: Undir þennan flokk falla ýmis þemu sem ekki eiga heima annarsstaðar og eru oft notuð sem uppfylling á kortið, eins og myndkort (orthomyndir), hæðarlínur og grunnmynd. Myndkortin eru unnin eftir loftmyndum teknum úr annars vegar 9200 m, hins vegar 850 m hæð. Borgarverkfræðingur á bæði myndkortin og loftmyndirnar og þar með útgáfu- og dreifingarrétt þeirra. Athugið að hús og lagnir sjást ofan á myndkortinu en allt annað hverfur undir það. Hluti myndkorta úr 850 m. hæð er endurnýjaður árlega og er reynt að hafa myndirnar aldrei eldri en 4 ára.
Hæðargrundvöllur húsa og myndkorta er yfirborð jarðar. Þar sem að þök húsa standa þó nokkuð ofan jarðaryfirborðs hliðrast þau örlítið til í uppréttum loftmyndum, af þeim sökum falla þakfletir á mynd ekki alltaf saman við húsfláka. Hlutir við jarðaryfirborð, s.s. götukantar eiga aftur á móti að falla ofan í myndirnar.
Til að birta þema á korti þarf að smella á það, þá verður nafn þess blátt sem
merkir að það teiknast á kortið. Teiknun fer ekki sjálfvirkt í gang og þarf
notandinn að ákveða hvenær endurteiknun á sér stað og getur þannig valið mörg
þemu og sett teiknun í gang með því að ýta
á endurteiknunarhnappinn. Þá birtast valin þemu á kortinu. Sum þemu
eru kvarðastillt þannig að þau birtast ekki fyrr en að kortið er komið í ákveðna
stærð af mælikvarða og önnur hverfa þegar mælikvarði stækkar, t.d. eru götur
teiknaðar sem miðlínur í smáum kvörðum en þegar kvarðinn stækkar (notandi
hefur þysjað sig inn) breytast þær í fláka með kantlínum. Ef þema birtist
ekki þegar búið er að endurteikna þarf því líklegast að þysja inn í kortið
til að fá það fram. Kvarðastillingar eru notaðar til þess að létta birtingu
kortsins enda verður vinnsla mjög þung ef t.d. lagnir eða hæðarlínur eru teiknaðar
yfir alla borgina. Einnig er haft í huga við kvarðastillingar að hlutir sé
ekki birtir fyrr en þeir eru orðnir skýrir. Þjónustuþemu birtast t.d. aldrei
á yfirlitskorti en koma fram þegar borgarhverfi er skoðað nánar.
Til að fá upplýsingar um þema þarf að tvísmella á það, þá verður nafn þess ljósblátt
og undirstrikað. Einungis er hægt að fá upplýsingar um eitt þema í einu. Upplýsingar
eru veittar um einstakar fitjur (þ.e. hluti á korti, e: "features")
og til að kalla þær fram velur notandinn upplýsingahnappinn (i) og bendir
á viðkomandi fitju. Reynt hefur verið að stilla fyrirspurnir þannig að fitjur
finnist auðveldlega en ef engar upplýsingar birtast hefur notandi að öllum
líkindum ekki smellt nógu nákvæmlega á fitjuna og þarf að prófa aftur. Upplýsingar
birtast í sérstökum upplýsingaglugga.
üYfirlitsmynd
Með því að smella á þennan hnapp er farið í
byrjunarstöðu þar sem birtist kort af allri borginni.
qEndurteikna
Með því að smella á þennan hnapp er kortið endurteiknað.
Þetta er nauðsynlegt í hvert sinn sem bætt er við nýju atriði, t.d.
kveikt á lögnum, hæðarlínum, framkvæmdum o.s.frv.
eða til að taka í burtu atriði eins og lengdarmælingu.
- Þysja út
Til
að þysja út úr myndinni (“zoom out”) smellirðu á þennan hnapp og dregur músina
til með hnappinn niðri þangað til kominn er kassi.
Því smærri sem kassinn er því stærra svæði færðu yfirlit af, þegar
þú sleppir músarhnappnum. Hægt er að smella einu sinni á kortið með þennan
hnapp valinn og þá birtist kort sem þekur tvöfalt stærra svæði á alla kanta
en fyrri mynd.
+Þysja inn
Til að þysja inn í myndina (“zoom in”) smellirðu á þennan
hnapp og dregur músina til með hnappinn niðri þangað til kominn er kassi af
óskaðri stærð og sleppir þá músarhnappnum. Hægt er að smella einu sinni
á kortið með þennan hnapp valinn og þá birtist kort sem þekur tvöfalt minna
svæði á alla kanta en fyrri mynd.
Hliðra
Þessi
hnappur (höndin) er til að færa kortið til. Þú
smellir á hnappinn og smellir síðan með vinstri músarhnappnum
einhverstaðar á myndina og dregur myndina til svo önnur svæði
sjáist. Mælikvarðinn helst óbreyttur.
i Upplýsingar
Þegar
búið er að tvísmella á þema í lista (þema undirstrikað) er þessi hnappur valinn
og síðan smellt á fitju á viðkomandi þema á kortinu.
Þá kemur upp gluggi sem inniheldur upplýsingar um valið þema. Til að
loka glugga er hægt að smella á x í hægra horninu uppi eða smella á endurteiknunartáknið.
Fyrir þemu sem eru í flokknum upplýsingar á yfirleitt að benda á hús til þess
að fá nánari upplýsingar um viðkomandi hús eða lóðina sem það stendur á, gatnaþemað
byggir þó á því að bent sé á miðlínu götunnar.
Ef
hringmyndir hafa verið valdar birtast punktar á kortinu og með því að benda
á punkt birtist í upplýsingaglugganum ljósmynd af viðkomandi svæði, sem hægt
er hreyfa í hringi. Þessar myndir eru spilaðar með “Quick Time” hugbúnaðinum,
sem þarf að vera inni á vélinni og ef hann er ekki til staðar er notanda beint
inn á vefslóð þar sem nálgast má hugbúnaðinn eða smella hér (www.apple.com/quicktime/download)
og fylgja leiðbeiningunum.
Ef
lóðablöð hafa verið valin þarf að benda á lóð á kortinu og þá birtist skannað
mæliblað af viðkomandi lóð og nágrenni hennar í nýjum vafraglugga.
m Lengdarmæling
Mæla
vegalend á korti. Eftir að hafa valið táknið skal smella á kortið
þar sem byrja á að mæla, og smella svo aftur á kortið til að velja brotpunkta
á þeim ferli sem á að mæla. Línan sem búið er að teikna hverfur þegar annar
hnappur er valinn.
m²Flatarmálsmæling
Mæla
flatarmál á svæði sem afmarkað er á kortinu.
Eftir að hafa valið táknið skal smella á kortið þar sem mæla á svæði.
Með því að smella með músinni eru settir inn punktar sem afmarka svæðið
sem á að mæla. Flatarmál svæðisins birtist í litlum kassa sem fylgir bendlinum
þegar minnst þrír punktar hafa verið settir inn. Boxið sem búið er að teikna
hverfur þegar annar hnappur er valinn. Athugið að teikna ekki afmörkunarlínur
sem fara í kross.
c Leita
Leitun
eftir götuheiti og húsnúmeri. Heiti
götu og húsnúmer eru slegin inn í nefnifalli og síðan er smellt
á leitarhnappinn. Þá er viðkomandi
heimilisfang sýnt með rauðri stjörnu á kortinu. Ef notandi hefur
þysjað svo mikið inn að heimilisfangið sést ekki er kortið fært í óbreyttum
mælikvarða að völdu heimilisfangi.
Uppsetning á Shockwave og Quick Time
Til
að skoða Borgarvefsjána þarf Shockwave Player að vera settur upp á viðkomandi vél. Shockwave er gagnvirkur margmiðlunar búnaður sem gerir manni kleift að skoða hreyfimyndir
og aðra gagnvirkar myndir á heimasíðum.
Eftir
að smellt hefur verið á "Download" hnappin og Shockwave
er ekki á viðkomandi vél kemur upp gluggi sem gefur til kynna að verið sé
að setja þetta forrit á vélina.

Þetta
tekur um það bil 10 – 15 mínútur fer eftir því hvað tengingin er hraðvirk. Hægt er að vinna á vélinni á meðan, einnig skoða
aðrar heimasíður.
Þegar
uppsetningu er lokið kemur gluggi sem biður um að velja tungumál.

Velja
skal efsta tungumálið U.S.English og smella með vinstri músarhnappi á OK.
Þá
er uppsetningu lokið og mun Borgarvefsjáin byrtast í vefglugganum.
Til
að skoða hringmyndir þarf “QuickTime”
. Ef þetta forrit er ekki til staðar á vélinni er
vísað í heimasíðu þar sem hægt er að nálgast þetta forrit, þegar smellt er
með upplýsingahnappnum á hringmyndastjörnu. Þá kemur þessi
mynd
Smellið með vinstri músarhnappi á slóðina sem vísar á heimasíðuna.

Smellið með vinstri músarhnappi á “Download QuickTime”
Þá
koma eftirfarandi gluggar.
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next>”
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next>”
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Agree”.
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á “Next>”.
|
|

|
Veljið
“Minimum” eða ”Recommended” og smellið með vinstri músarhnappi á “Next>”.
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next>”.
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next>”.
|
|

|
Hér
þarf ekkert að skrifa. Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next>”.
|
|

|
Hér
þarf ekkert að skrifa. Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Continue”.
|
|

|
Þá
er forritið hlaðið inn.
|
|

|
Ef
verið er að nota Internet Explorer er beðið um ákveðnar stillingar.
Ef
um annan vafra er að ræða kemur þessi gluggi ekki upp.
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next”
|
|

|
Smellið
með vinstri músarhnappi á
“Next”
|
|

|
Spurt
er um hvaða myndformat forritið á að geta lesið.
Veljið öll formötin. Smellið
með vinstri músarhnappi á “Finish”.
|
|

|
Þá
er uppsetningu lokið. Hægt er
að lesa upplýsingar um “QuickTime” og fá upp “QuickTime Player” með
því að haka við “Yes ....” spurningarnar.
Þetta er ekki nauðsynlegt.
Smellið
með vinstri músarhnappi á “Close”
|
Til
að “QuickTime” virki þarf að endurræsa vafrann.
Í
næsta skipti þegar hringmyndir eru skoðaðar birtast 360 gráðu myndir í upplýsingaglugganum sem opnast ofan á kortinu.
|