Velkomin í Borgarvefsjá


Borgarvefsjá er fyrirspurna- og upplýsingakerfi sem vinnur með gagnagrunna Landupplýsingakerfis Reykjavíkur (LUKR) og
veitir upplýsingar úr þeim og tengdar upplýsingar. Þessir gagnagrunnar eru stöðugt uppfærðir og veita því ávallt nýjustu fáanlegar upplýsingar.

Þetta er önnur útgáfa Borgarvefsjár og er hún unnin í samvinnu Hnits, Gagaríns og Samsýnar fyrir og í samstarfi við Umhverfis- og tæknisvið Reykjavíkur, Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur, en þessar borgarstofnanir/ -fyrirtæki eru aðilar að LUKR. Umhverfis- og tæknisviðið hafði heildarverkstjórn á hendi og Hnit tæknilega verkstjórn. Fyrsta útgáfa Borgarvefsjár kom út í des. 1999.

Nýja útgáfan er gjörbreytt að útliti og byggt er á nýjasta vefhugbúnaði, ArcIMS frá ESRI, og Shockwave margmiðlunarumhverfi. Nýja útgáfan leysir í byrjun öll verkefni sem voru í gömlu útgáfunni. Að auki koma "myndkort" (orthomyndir) af borginni sem gerð eru eftir litloftmyndum, einnig eru nokkur atriði sem varða þjónustu borgarinnar við almenning og loks eru svonefndar "hringmyndir" (panorama) af allmörgum gatnamótum.

Auðvelt er að bæta við nýjum atriðum af ýmsu tagi, og má því gera ráð fyrir að Borgarvefsjá eigi eftir að taka örum breytingum, þannig að hún þjóni sem best þörfum íbúa borgarinnar á hverjum tíma.

Til að geta opnað Borgarvefsjá þarftu að vera með Shockwave player, en hann getur þú sótt hér.

Tutorial

Hjálp

Um gögnin

Notkun s.l. 12 mán.